15.05.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Jón Vilhelm í Kára (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Vilhelm Ákason, fyrrum leikmaður ÍA, hefur fengið félagaskipti í Kára í 3. deildinni.
Jón Vilhelm hefur leikið með uppeldisfélagi sínu ÍA nánast allan ferilinn en hann fékk ekki nýjan samning eftir síðasta tímabil.

Hinn þrítugi Jón Vilhelm hefur lítið æft í vetur en hann hefur nú fengið félagaskipti yfir í Kára áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.
Í fyrra skoraði Jón Vilhelm þrjú mörk í sextán leikjum með ÍA í Pepsi-deildinni.
Kára er spáð 2. sæti í 3. deildinni í sumar í spá þjálfara en liðið lagði Vængi Júpíters 3-1 í fyrstu umferðinni um helgina.