15.05.17 - 18:10
Elvar Geir Magnússon
Ólafur Hrannar í Þrótt (Staðfest)

Ólafur Hrannar Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ólafur Hrannar Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson hefur gengið til liðs við Þróttara en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Ólafur kemur frá Leikni í Breiðholti þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Hann hefur lengi verið í lykilhlutverki hjá Leikni, hefur leikið þar um 200 leiki í meistaraflokki og verið iðinn við markaskorun auk þess sem hann var fyrirliði Leiknis á tímabilinu 2013-2016.
„Ólafur Hrannar er þekktur fyrir leikgleði og vinnusemi og ekki vafi á því að leikreynsla hans mun styrkja okkur í Inkasso baráttunni framundan. Við bjóðum Óla velkominn í Þrótt og tökum vel á móti honum,\" segir á heimasíðu Þróttar.

Fyrr í dag greindum við frá því að Ólafur hefði rift samningi sínum við Leiknismenn.
„Ég var í leiðinlegum meiðslum í vetur og er ekki í plönunum hjá Kristó þjálfa. Ég fer samt ekki í neinum leiðindum og óska liðinu alls hins besta,\" sagði Ólafur við Fótbolta.net.
Þróttarar eru með þrjú stig í Inkasso-deildinni eftir tvo leiki en þeir unnu ÍR-inga síðasta föstudag eftir að hafa tapað gegn Haukum í fyrstu umferð.
Svo skemmtilega vill til að Þróttur mætir Leikni í Breiðholtinu í bikarnum á morgun.

Heimild: Þróttur

Ólafur ásamt Gregg Ryder, þjálfara Þróttar.

Mynd: Þróttur