15.05.17 - 11:59
Magnús Már Einarsson
Ólafur Íshólm í Breiðablik (Staðfest)

Ólafur Íshólm Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ólafur Íshólm Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Breiðablik hefur fengið markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafsson til liðs við sig frá Fylki.
Gunnleifur Gunnleifsson er aðalmarkvörður Breiðabliks en Patrik Sigurður Gunnarsson hefur verið varamarkvörður í byrjun sumars. Patrik er fæddur árið 2000 og því ennþá á yngsta ári í 2. flokki.
Ólafur Íshólm var varamarkvörður í fyrsta leik Fylkis í Inkasso-deildinni gegn Þór um þarsíðustu helgi og óskaði í kjölfarið eftir að fá að yfirgefa félagið.

Ólafur er uppalinn Fylkismaður og er 22 ára gamall. Hann hefur verið inn og út úr Fylkisliðinu undanfarin ár.
Hann byrjaði 14 leiki með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra en tveir aðrir markmenn voru fengnir til liðs við félagið á þeim tíma, Marko Pridigar sem spilaði sex leiki og Lewis Ward sem spilaði þrjá.
„Þetta er komið gott hjá Fylki. Ég er ósáttur með að ég sé ekki að byrja. Þetta hefur verið svona gegnumgangandi undanfarin ár. Þetta er orðið þreytt,\" sagði Ólafur við Fótbolta.net í síðustu viku.