15.05.17 - 20:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ruth Þórðar í ÍA á láni (Staðfest)

Ruth Þórðar er farin á láni.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ruth Þórðar er farin á láni.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ruth Þórðar Þórðardóttir hefur verið lánuð frá Fylki yfir til ÍA.
Hún mun spila með Skagakonum í 1. deild kvenna í sumar.
Ruth hefur allan sinn feril leikið með Fylki, fyrir utan nokkra leiki þar sem hún spilaði með Þrótti Reykjavík.

Ruth hefur spilað meira en 200 leiki með Fylki á sínum ferli, en núna mun hún prófa eitthvað nýtt.
Miklar breytingar hafa verið á leikmannahópi Fylkis þar sem margar ungar stelpur hafa verið fengnar til liðsins.
ÍA féll úr Pepsi-deildinni síðasta sumar, en þær stefna beint upp aftur. Þær eru búnar að leika einn leik í 1. deild kvenna, en þær unnu öruggan 6-0 sigur á Tindastóli í honum.