Fotbolti.net
15.05.17 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Zabaleta fer frá Man City í sumar (Staðfest)

Zabaleta hefur verið lengi hjá Man City.

Zabaleta hefur verið lengi hjá Man City.

Canon

Mynd: Getty Images

Bakvörðurinn Pablo Zabaleta mun yfirgefa Manchester City eftir tímabilið, en þetta hefur félagið staðfest.

Samningurinn hjá Zabaleta rennur út í sumar og nú er það ljóst að samningur hans verður ekki framlengdur.
„Pablo hefur greint félaginu frá því að hann muni fara annað eftir tímabilið, en hann skilur eftir sig margar góðar minningar,\" segir í yfirlýsingu frá Manchester City.

Zabaleta er búinn að vera í níu ár hjá City-liðinu, en hann kom frá Espanyol árið 2008 og hefur verið í stóru hlutverki síðan þá.

Óvíst er hvað Zabaleta tekur sér fyrir hendur, en West Ham er á meðal þeirra liða sem eru orðuð við hann.

Þessi 32 ára gamli leikmaður er einn af sjö leikmönnum sem eru að renna út á samningi eftir tímabilið. Hinir eru Bacary Sagna, Gael Clichy, Yaya Toure, Tosin Adarabioyo, Jesus Navas og Willy Caballero.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.