15.05.18 - 12:24
Magnús Már Einarsson
Alexander Helgi í Víking Ó. (Staðfest)

Alexander Helgi Sigurðarson (til vinstri) í leik árið 2016.

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið miðjumanninn Alexander Helga Sigurðsson á láni frá Breiðabliki.
Alexander framlengdi samning sinn við Breiðablik til loka keppnistímabilsins 2019 áður en hann fór á lán.
Alexander fór til Víkings Ólafsvíkur á láni árið 2016 en meiðsli komu í veg fyrir að hann spilaði þar.
Þessi 22 ára leikmaður var í unglingaliðum AZ Alkmaar frá 2013 til 2016 áður en hann kom aftur heim í sitt gamla félag Breiðablik.
Víkingur Ólafsvík er með fjögur stig eftir tvær umferðir í Inkasso-deildinni en liðið heimsækir Magna í næstu umferð á laugardaginn.

Miðjumaðurinn efnilegi Alexander Helgi Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka keppnistímabilsins 2019. Á sama tíma var hann lánaður tímabundið í Víking Ó og mun hann spila næsta leik með Ólafsvíkingunum í Inkasso-deildinni. #blikar 💚 pic.twitter.com/1xdUXOGBMm
— Blikar.is (@blikar_is) May 15, 2018