Fotbolti.net
15.05.18 - 17:11
Elvar Geir Magnússon

Kári Árnason heim í Víking (Staðfest)

Kári byrjar að spila fyrir Víkinga eftir HM.

Kári byrjar að spila fyrir Víkinga eftir HM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Risastórar fréttir hafa borist en Víkingar hafa tilkynnt um félagaskipti landsliðsmiðvarðarins Kára Árnasonar til félagsins.

Kári er 35 ára miðvörður sem ekki þarf að kynna fyrir íslenskum fótboltaáhugamönnum enda verið lykilmaður á blómaskeiði landsliðsins. Fyrr í dag var opinberað að hann hefði yfirgefið Aberdeen í Skotlandi.
Hann hefur leikið 54 landsleiki og var í byrjunarliði Íslands í öllum leikjunum á EM 2016.

Kári fer með Íslandi á HM í Rússlandi en hann mun ekki byrja að spila fyrir Víkinga fyrr en að mótinu loknu, eins og fram kemur í tilkynningu Víkinga.

Víkingar hafa náð fínni byrjun í Pepsi-deildinni og eru með fimm stig að loknum þremur fyrstu umferðunum.

Fréttatilkynning Víkings:
Knattspyrnudeild Víkings og Kári Árnason hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn gangi í raðir Víkings. Kári hefur undirritað samning við Víking sem gildir út tímabilið 2019.

Þjálfarar Víkings og stjórn félagsins lýsa yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun Kára að ganga til liðs við félagið á nýjan leik. Jafnframt er gaman að geta sameinað Kára á ný með Sölva Geir Ottesen hjá félaginu þar sem þeir hófu sinn meistaraflokksferil.

Kári er í fullum undirbúningi fyrir HM í knattspyrnu og mun því ekki byrja að spila fyrir Víking fyrr en að þeirri keppni lokinni.

Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir mikilli ánægju með að geta loksins sagt „Velkominn heim, Kári!“

#vikingurfc og @karibestmeister hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn gangi í raðir Víkings. Kári hefur undirritað samning við Víking sem gildir út tímabilið 2019.
Velkominn heim, Kári!#fotbolti #gluggadagur pic.twitter.com/YaZhB4DxiL

— Víkingur FC (@vikingurfc) May 15, 2018
Kári hefur leikið 65 landsleiki.

Kári hefur leikið 65 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.