15.05.18 - 20:20
Elvar Geir Magnússon
Kristófer Konráðs og Rollinson í Þrótt (Staðfest)

Kristófer Konráðsson í leik með Stjörnunni.

Mynd: Raggi Óla

Þróttur Reykjavík hefur bætt við sig þremur leikmönnum á gluggadeginum en á miðnætti í kvöld verður lokað fyrir félagaskipti hér innanlands.
Þróttarar, sem leika undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar, hafa ekki náð óskabyrjun í Inkasso-deildinni, 1. deild karla, og eru með eitt stig að loknum tveimur umferðum.

Hinn tvítugi Kristófer Konráðsson kemur á láni frá Stjörnunni en í fyrra lék hann níu leiki með Garðabæjarliðinu í Pepsi-deildinni.
Kristófer á að baki 22 landsleiki með yngri landsliðum, þar af tvo leiki með U21 árs liðinu.
Henry Rollinson, 19 ára Breti sem er uppalinn hjá Leeds United, kemur á láni frá ÍBV. Rollinson er miðjumaður sem gekk í raðir ÍBV á liðnum vetri en hefur ekki komið við sögu í meistaraflokknum í fyrstu leikjum tímabilsins.
Þá hefur Þrótt fengið Finn Tómas Pálmason, ungur leikmann úr KR sem leikið hefur átján U17 landsleiki. Eins og hinir tveir leikmennirnir þá kemur Finnur á lánssamningi.
Þróttur mætir ÍR í þriðju umferðinni á föstudaginn, leikið verður í Breiðholti.