15.05.18 - 15:12
Magnús Már Einarsson
Leiknir R. fær varnarmann frá Búlgaríu (Staðfest)

Úr leik hjá Leikni og Njarðvík í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir R. hefur fengið búlgarska miðvörðinn Miroslav Pushkarov í sínar raðir.
Pushkarov er 23 ára gamall en hann spilaði með Maritsa Plovdiv í næstefstu deild í Búlgaríu í vetur.
Leiknir R. hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Inkasso-deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Fram á föstudaginn.
Pushkarov getur spilað sinn fyrsta leik þar líkt og miðjumaðurinn Anton Freyr Ársælsson sem kom á láni frá Fjölni í gær.
Anton var einnig í láni hjá Leikni síðari hlutann á síðasta tímabili.