15.05.18 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Matt Garner í KFS (Staðfest)


Mynd: Raggi Óla


Mynd: Raggi Óla
Matt Nicholas Paul Garner mun leika með KFS í 4. deildinni í sumar. Garner skiptir yfir til KFS eftir að samningur hans við ÍBV rann út.
Garner á yfir 200 leiki að baki fyrir ÍBV og lék með KFS í 3. deildinni fyrir tveimur árum. Hann fór þó aftur til ÍBV og lék 17 leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
Garner á yfir 200 leiki að baki fyrir ÍBV og lék með KFS í 3. deildinni fyrir tveimur árum. Hann fór þó aftur til ÍBV og lék 17 leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
KFS er skipað Eyjamönnum og spilar í C-riðli 4. deildarinnar, en Garner hefur aldrei áður spilað í þeirri deild.
Garner er 34 ára gamall og mun reynast mikill liðsstyrkur fyrir sitt nýja félag.
Garner er 34 ára gamall og mun reynast mikill liðsstyrkur fyrir sitt nýja félag.
