Fotbolti.net
15.05.19 - 16:00
Arnar Daði Arnarsson

Axel Andri lánaður í Elliða (Staðfest)

Axel Andri í leik með Fylki.

Axel Andri í leik með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Axel Andri Antonsson hefur verið lánaður í Elliða frá Fylki.

Axel sem er fæddur árið 1998 lék á síðasta tímabili með Kórdrengjum skoraði þrjú mörk í 13 leikjum með liðinu í deild og bikarkeppninni.
Hann lék nokkra leiki með Fylki í Pepsi-deildinni sumrin 2015 og 2016 og árið 2017 lék hann með liðinu í Inkasso-deildinni.

Bjarki Lilliendahl og Ernir Daði Fjölvarsson hafa einnig gert félagaskipti yfir í Elliða frá Fylki. Þá hefur félagið einnig fengið Ólafur Hrafn Kjartansson frá Augnabliki og Ísak Breka Jónsson frá KFG.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.