Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. maí 2019 15:00
Arnar Daði Arnarsson
Davíð Rúnar í Magna (Staðfest)
Davíð Rúnar í leik með Magna í fyrra.
Davíð Rúnar í leik með Magna í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Rúnar Bjarnason hefur skipt yfir í Magna á nýjan leik eftir að hafa spilað með Nökkva í Mjólkurbikarnum fyrr á þessu ári. Davíð Rúnar skoraði í 2-4 tapi Nökkva á KF í fyrstu umferð bikarkeppninnar.

Hann lék með Magna í Inkasso-deildinni í fyrra en þar áður hafði hann leikið allan sinn feril með KA bæði í Inkasso og Pepsi-deildinni.

Magni er á botni Inkasso-deildarinnar eftir fyrstu tvær umferðirnar. Liðið tapaði 4-1 gegn Leikni R. í fyrstu umferðinni og í síðustu umferð tapaði liði 3-1 gegn Keflavík í Boganum.

Davíð Rúnar er kominn með leikheimild með Magna og gæti spilað gegn Fjölni á laugardaginn í 3. umferðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner