Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. maí 2020 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ceballos kemur Bale til varnar: Horfið á úrslitaleikina
Ceballos og Bale ásamt Karim Benzema.
Ceballos og Bale ásamt Karim Benzema.
Mynd: Getty Images
Velski kantmaðurinn Gareth Bale hefur fengið mikinn skerf af gagnrýni og er illa liðinn meðal stuðningsmanna Real Madrid.

Stuðningsmenn félagsins vilja losa sig við hann og var Dani Ceballos, sem er að láni hjá Arsenal, spurður út í alla þessa gagnrýni sem liðsfélagi hans er að fá.

„Bale er mikilvægur leikmaður fyrir Real Madrid, við megum ekki gleyma öllu sem hann hefur gert fyrir félagið," sagði Ceballos.

„Hver sem treystir honum ekki ætti að horfa á úrslitaleiki Meistaradeildarinnar. Hann hefur gefið þessu félagi nóg."

Bale verður 31 árs í sumar og á tvö ár eftir af samningi sínum við Real Madrid. Félagið hefur reynt að selja hann í síðustu félagaskiptagluggum en án árangurs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner