Fotbolti.net
15.05.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Íþróttafélagið Ösp með æfingar fyrir stelpur

Íþróttafélagið Ösp með æfingar fyrir stelpur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Hertz
Íþróttafélagið Ösp verður með fótboltaæfingar fyrir stelpur alla mánudaga klukkan 18:00 á íþróttasvæði Þróttar R. KSÍ greinir frá þessu á vefsíðu sinni og hvetur stelpur til að mæta.
Fyrsta æfingin verður næsta mánudag en svo er Öspin einnig með blandaðar æfingar á þriðjudögum og miðvikdögum klukkan 18:00, þar sem bæði strákar og stelpur geta tekið þátt.

Piotr Wojdat verður með umsjón yfir æfingunum. Piotr er yfirþjálfari hjá Ösp og hefur áralanga reynslu af starfi og þjálfun fatlaðra.

Hægt er að hafa beint samband við Piotr í síma 892-9827 eða með tölvupósti á [email protected].

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.