banner
   sun 15. maí 2022 15:57
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: FH sigraði gegn slökum Eyjamönnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 2 - 0 ÍBV
1-0 Matthías Vilhjálmsson ('29)
2-0 Davíð Snær Jóhannsson ('64)


FH tók á móti ÍBV í fyrsta leik dagsins í Bestu deild karla og úr varð nokkuð tíðindalítil viðureign.

Matthías Vilhjálmsson kom FH yfir eftir góða stungusendingu frá Birni Daníel Sverrissyni og komust heimamenn nálægt því að tvöfalda forystuna en það tókst ekki.

Eyjamenn leituðu að jöfnunarmarki en áttu í miklum vandræðum með að koma sér í alvöru færi. Þess í stað tvöfölduðu Hafnfirðingar forystuna á 64. mínútu, Davíð Snær Jóhannsson setti þá boltann í netið eftir frábæra stoðsendingu frá Kristni Frey Sigurðssyni.

ÍBV átti engin svör við varnarleik FH og urðu lokatölur 2-0 fyrir Hafnfirðinga. FH eru komnir með sjö stig eftir sex fyrstu umferðir sumarsins á meðan ÍBV er aðeins með tvö stig.

Sjáðu textalýsinguna.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner