15.06.17 - 21:49
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Davy Klaassen til Everton (Staðfest)

Klaassen í úrslitaleik Evrópudeildarinnar

Mynd: Getty Images

Davy Klaassen, fyrrum fyrirliði Ajax er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið, Everton og skrifaði hann undir fimm ára samning. Kaupverðið er 23,6 milljónir punda.
Klaassen hefur leikið 163 leiki fyrir Ajax og skorað 49 mörk. Fyrsti leikur hans með hollenska stórliðinu kom árið 2011.
Hollendingurinn hefur leikið allan sinn feril hjá Ajax og unnið þrjá deildartitla með félaginu.
<i>„Það er erfitt að yfirgefa Ajax en ég held að þetta sé gott skref fyrir mig núna,\"</i> sagði Klaassen.
Ronald Koeman, stjóri Everton er byrjaður að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir næsta tímabil en Everton verður í Evrópudeildinni eftir að hafa endað í sjöunda sæti deildarinnar.
Markvörðurinn Jordan Pickford gekk til liðs við Everton í dag frá Sunderland á 25 milljónir punda sem er breskt met fyrir markvörð.
Klaassen var valinn leikmaður ársins í Hollandi í fyrra en hann leiddi lið Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði fyrir Manchester United.
Hollendingurinn var aðalskotmark Koeman eftir að óvissa kom upp um Ross Barkley, miðjumann Everton en honum hefur verið sagt að hann verði seldur, skrifi hann ekki undir nýjan samning við félagið.
<i>„Hann er leikmaður sem er aðeins 24 ára gamall en hefur mikla reynslu og er leiðtogi á vellinum. Hann hefur verið fyrirliði Ajax síðustu tvö tímabil og það sýnir hvernig týpa af manni hann er,\"</i> sagði Koeman um sinn nýjasta leikmann

Everton have signed Netherlands international Davy Klaassen on a five-year deal from Ajax
— Premier League (@premierleague) June 15, 2017
More: https://t.co/j3llgzrUWT pic.twitter.com/wQTXdZsqx4