15.06.17 - 15:50
Elvar Geir Magnússon
Harry Maguire til Leicester (Staðfest)

Harry Maguire er kominn til Leicester.

Mynd: Getty Images

Harry Maguire er kominn til Leicester.

Mynd: Getty Images
Leicester City hefur tilynnt um kaup á varnarmanninum Harry Maguire fyrir 17 milljónir punda.
Maguire kemur frá Hull City sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

„Þeir eru að fá mjög traustan varnarmann sem er virkilega góður á boltanum. Hann á frábærar sendingar úr vörninni. Þetta er mikill styrkur fyrir Leicester og hann verður besti miðvörður liðsins. Ég get séð fyrir mér að hann verði reglulega í enska landsliðshópnum í framtíðinni,\" segir Daníel Geir Moritz, umsjónarmaður Innkastsins, en hann er mikill aðdáandi Maguire.
Maguire er 24 ára og hefur leikið í efstu deild, B-deild og C-deild á Englandi. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Leicester sem hafnaði um miðja deild í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.
„Þetta er augljóslega mjög spennandi fyrir mig,\" segir Maguire. „Það var mikill áhugi á mér en þegar ég hitti knattspyrnustjórann hér sá ég að það eru spennandi hugmyndir framundan.\"
Maguire var valinn leikmaður ársins hjá Hull, bæði af samherjum sínum og stuðningsmönnum.
West Brom hafnaði í gær tilboði frá Leicester upp á 10 milljónir punda í varnarmanninn Jonny Evans. Evans er 29 ára fyrirliði landsliðs Norður-Írlands en hann kom til West Brom frá Manchester United 2015 á 6 milljónir punda.