Fotbolti.net
15.06.17 - 15:42
Magnús Már Einarsson

Jordan Pickford til Everton á metfé (Staðfest)

Jordan Pickford til Everton á metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Everton hefur keypt markvörðinn Jordan Pickford frá Sunderland á 25 milljónir punda.

Kaupverðið hækkar upp í 30 milljónir ef Pickford stendur sig vel hjá Everton.

Pickford verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Everton ef kaupverðið endar í 30 milljónum en Romelu Lukaku kostaði 28 milljónir þegar hann kom frá Chelsea árið 2014.
Hinn 23 ára gamli Pickford skrifaði undir fimm ára samning við Everton.

„Þetta er risa félag og ég held að þetta sé rétti tíminn fyrir mig til að koma til Everton og sýna hvað ég get gert,\" sagði Pickford eftir undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.