15.06.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Thomas Christiansen tekinn við Leeds (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds hefur ráðið Thomas Christiansen sem stjóra. Hann tekur við af Garry Monk sem hætti á dögunum til að taka við Middlesbrough.
Christiansen er sjötti stjórinn hjá Leeds á þremur árum.
Eina reynsla hans sem þjálfari er frá Kýpur þar sem hann þjálfaði Apoel Nicosia á nýliðnu tímabili eftir að hafa áður stýrt AEK Larnaca í tvö ár.

Hinn 44 ára gamli Christiansen ólst upp í Danmörku en móðir hans er frá Spáni.
Christiansen var framherji á ferli sínum sem leikmaður en hann spilaði meðal annars með Barcelona, Villarreal, Oviedo, Bochum og Hannover auk þess sem hann lék tvo landsleiki með Spáni.