Fotbolti.net
15.06.18 - 08:46
Elvar Geir Magnússon

Bielsa tekur við Leeds (Staðfest)

Bielsa er mættur í Championship.

Bielsa er mættur í Championship.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur staðfest á ráðningu á Marcelo Bielsa. Hann gerir tveggja ára samning við félagið um að vera knattspyrnustjóri þess.

Þessi 62 ára Argentínumaður tekur við af Paul Heckingbottom.

Leeds er í Championship-deildinni en Bielsa segist vera í skýjunum með að taka að sér stjórahlutverkið hjá Leeds

<i>„Ég hef alltaf verið með á stefnuskránni minni að starfa á Englandi og ég hef fengið fjölda tækifæra til að gera það á mínum ferli. Ég hef alltaf talið mikilvægt að bíða eftir að rétta tækifærið myndi koma,\"</i> segir Bielsa.

<i>„Þegar félag með sögu eins og Leeds gerði mér tilboð var ekki hægt að hafna því. Ég er spenntur fyrir þeim áskorunum sem eru framundan og við munum leggja mikið á okkur til að afreka flotta hluti hjá þessu félagi,\"</i> segir Bielsa.

Bielsa hefur víða komið við á ferli sínum en hann hefur meðal annars þjálfað landslið Argentínu og Síle. Þá hefur hann stýrt Athletic Bilbao, Lazio og Lille svo einhver félög séu nefnd.

Leeds hafnaði í þrettánda sæti í Championship-deildinni á liðnu tímabil.

Any news? 👀 pic.twitter.com/AVO7MOePZ3

— Leeds United (@LUFC) June 15, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.