Fotbolti.net
15.06.18 - 15:38
Ingólfur Páll Ingólfsson

Marc Navarro til Watford (Staðfest)

Navarro í baráttu við Suarez fyrr í vetur.

Navarro í baráttu við Suarez fyrr í vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Marc Navarro frá Espanyol.
Þessi 22 ára gamli leikmaður getur spilað í báðum bakvarðarstöðum sem og í miðverði. Navarro gerir fimm ára samning við félagið.

Navaroo hefur spilað 35 leiki fyrir Espanyol í LaLiga síðan hann kom inn á í fyrsta skipti í janúar 2017. Hann er þriðju kaup félagsins í sumar en áður hafði félagið gengið frá kaupum á Ben Wilmot, varnarmanni Stevenagi og Gerard Deulofeu frá Barcelona.

Navarro gæti spilað sinn fyrsta úrvalsdeildarleik er Watford mætir Brighton í fyrsta leik liðanna þann 11. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.