Fotbolti.net
15.06.19 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hlær að mynd Gylfa og birtir mynd af Henderson

Hlær að mynd Gylfa og birtir mynd af Henderson
Canon

Mynd: Eyþór Árnason

Landsliðsmaðurinn, Gylfi Þór Sigurðsson, og fegurðardrottningin, Alexandra Helga Ívarsdóttir, gengu í það heilaga í dag við Lake Como á Ítalíu.
Margir vilja meina að þetta sé gifting ársins og jafnvel áratugarins. Töluvert af liðsfélögum Gylfa Þórs í íslenska landsliðinu mættu til Ítalíu í vikunni og hafa verið virkir á Instagram frá því þeir komu

Á fimmtudag birti Gylfa mynda af sér á leið í einkaflugvél á leið til Lake Como. Með í för var hundur þeirra hjóna.

Gylfi leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Everton og ákvað einn stuðningsmaður Liverpool, nágranna Everton, að gera grín að myndinni með því að birta aðra mynd við hlið hennar. Á hinni myndinni er Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, í flugvél með Meistaradeildarbikarinn.

Við myndina skrifar stuðningsmaðurinn: „Hahahahahahahahaha."

Sjá einnig:
Myndir af landsliðsmönnunum í brúðkaupi Gylfa Sig


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.