15.06.22 - 17:14
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið ÍBV og Víkings: Arnar gerir fimm breytingar - Guðjón Pétur búinn í straffi

Þórður Ingason kemur inn fyrir Ingvar Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Ingason kemur inn fyrir Ingvar Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Víkingur R. eigast við í 9. umferð Bestu deildar karla klukkan 18:00 í dag. Leikurinn er spilaður á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum og er í beinni textalýsingu.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 3 Víkingur R.
Arnar Gunnlaugsson gerir fimm breytingar á liði sínu frá síðasta deildarleik gegn KA.
Ingvar Jónsson meiddist í landsliðsverkefninu og kemur því Þórður Ingason í rammann. Viktor Örlygur Andrason, Halldór Smári SIgurðsson, Birnir Snær Ingason, Erlingur Agnarsson koma allir inn í liðið.
Nikolaj Hansen, Ari Sigurpálsson, Helgi Guðjónsson og Kyle McLagan setjast á bekkinn.
Hermann Hreiðarsson gerir tvær breytingar á liði Eyjamanna en Atli Hrafn Andrason tekur út leikbann og þá kemur Tómas Bent Magnússon á bekkinn.
Elvis Okello Bwomono snýr aftur í liðið og þá kemur Sito einnig inn í byrjunarliðið. Guðjón Pétur Lýðsson er á bekknum en hann var ekki í hóp í síðustu tveimur leikjum eftir að honum lenti saman við Hermann í leik gegn ÍA.

Byrjunarlið ÍBV
- 2. Sigurður Arnar Magnússon
- 7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- 8. Telmo Ferreira Castanheira
- 9. Jose Enrique Seoane Vergara
- 23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 26. Felix Örn Friðriksson
- 42. Elvis Okello Bwomono
- 80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Byrjunarlið Víkingur R.
- 3. Logi Tómasson
- 7. Erlingur Agnarsson
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 10. Pablo Oshan Punyed Dubon (f)
- 18. Birnir Snær Ingason
- 20. Júlíus Magnússon (f)
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 80. Kristall Máni Ingason
- 4. Oliver Ekroth (f)