Fotbolti.net
14.06.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Man Utd sparar 10 milljónir ef Milan ræður Amorim

Man Utd sparar 10 milljónir ef Milan ræður Amorim
Canon

Mynd: EPA

Manchester United mun spara um 10 milljónir punda ef Portúgalinn Rúben Amorim verður ráðinn til starfa hjá AC Milan.
Amorim og starfsteymið hans eru enn að þiggja laun frá Rauðu djöflunum eftir brottrekstur frá félaginu í janúar, þegar þjálfarateymið átti ennþá eitt og hálft ár eftir af samningi.

Amorim er núna með eitt ár eftir af samningi og er talið að Rauðu djöflarnir spari sér um 10 milljónir punda ef Amorim fær starfið hjá Milan og tekur teymið sitt með til Ítalíu.

Taki Amorim við starfinu mun hann mæta sínum fyrrum lærlingum í æfingaleik um miðjan ágúst, þegar Milan spilar við Man Utd í Póllandi.

Amorim færist nær Milan
TENGT EFNI

Amorim færist nær Milan

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.