Fotbolti.net
14.06.26 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Tókst ekki að nýta kaupákvæðið

Tókst ekki að nýta kaupákvæðið
Canon

Mynd: EPA

Vinstri bakvörðurinn Anass Salah-Eddine snýr aftur til AS Roma eftir að hafa gert góða hluti á láni hjá PSV Eindhoven á nýliðinni leiktíð.
PSV rúllaði upp hollensku deildinni og ákvað að nýta 8 milljón evru kaupákvæði sem fylgdi með lánssamningi Salah-Eddine.

Leikmaðurinn sjálfur hafnaði þó öllum samningstilboðum PSV og kýs að snúa frekar aftur til Ítalíu þar sem hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Roma.

Mörg félög eru áhugasöm um að krækja í bakvörðinn eftir góða frammistöðu hjá PSV og er hann partur af leikmannahópi Marokkó sem keppir á HM.

Salah-Eddine er 24 ára gamall og með 8 A-landsleiki að baki fyrir Marokkó eftir að hafa spilað 49 leiki fyrir yngri landslið Hollands. Hann er, eins og svo margir aðrir í leikmannahópi Marokkó, fæddur utan landsteinanna.

Hann fékk að spila síðustu mínúturnar í jafntefli Marokkó gegn Brasilíu í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins, þar sem hann kom inn af bekknum fyrir Noussair Mazraoui bakvörð Manchester United.

Byrjunarlið Brasilíu og Marokkó: Stjörnur mætast í fyrsta stórleiknum
TENGT EFNI

Byrjunarlið Brasilíu og Marokkó: Stjörnur mætast í fyrsta stórleiknum

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.