Fotbolti.net
15.07.17 - 15:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bakayoko til Chelsea (Staðfest)

Bakayoko til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Chelsea FC

Chelsea hefur keypt franska miðjumanninn Tiemoue Bakayoko frá Mónakó fyrir 40 milljónir punda.

Hinn 22 ára gamli Bakayoko fór í læknisskoðun og skrifaði undir fimm ára samning við Englandsmeistaranna.

„Ég er mjög ánægður að vera hérna og ganga í þetta frábæra félag. Ég ólst upp við það að horfa á Chelsea. Ég hef elskað þetta félag frá því í barnæsku,\" sagði Bakayoko við undirskrift.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Chelsea fær til sín í sumar á eftir Willy Caballero og Antonio Rudiger.

Bakayoko mun mynda öfluga miðju með N\'Golo Kante hjá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.