Fotbolti.net
15.07.17 - 08:05
Magnús Valur Böðvarsson

Heiðar Austmann í KFS (Staðfest)

Heiðar hér í leik með Vatnaliljum fyrr í sumar gegn Elliða

Heiðar hér í leik með Vatnaliljum fyrr í sumar gegn Elliða

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

KFS úr Vestmannaeyjum hefur styrkt sig fyrir lokaátökin í 4.deild karla en í gær fengu þeir reynsluboltann og útvarpsmanninn Heiðar Austmann til liðs við sig.
Heiðar sem er nýorðinn fertugur spilar sem miðvörður kemur frá Vatnaliljunum en hann hefur komið víða við á sínum knattspyrnuferli. Hann hefur meðal annars leikið með Álftanes, ÍH, Létti og Úlfunum. Heiðar hefur leikið 124 leiki á sínum ferli og skorað 4 mörk.

Hann verður orðinn löglegur fyrir leik KFS gegn Elliða í dag en KFS er helst það lið sem mögulega gæti skákað Augnablik og ÍH um baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.