15.07.17 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Honda farinn til Mexíkó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Japanski miðjumaðurinn Keisuke Honda er farinn til Mexíkó. Hann skrifaði undir samning við Pachuca í gær.
Honda var laus allra mála hjá AC Milan eftir tímabilið, en samningur hans rann út í síðasta mánuði.

Hann er búinn að finna sér nýtt lið núna, Pachuca í Mexíkó.
Honda var orðaður við lið í MLS-deildinni, en hann ákvað frekar að fara yfir landamærin og spila í úrvalsdeildinni í Mexíkó.
Hjá Pahcuca kemur hann til með að leysa Hirving Lozano af, en Lozano gekk í raðir PSV Eindhoven á dögunum.

Más de nuestro nuevo refuerzo Keisuke Honda! pic.twitter.com/EIqg7PteN4
— Club Pachuca (@Tuzos) July 14, 2017