15.07.17 - 14:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City kaupir Douglas Luiz (Staðfest)

Mynd: Manchester City

Mynd: Manchester City
Manchester City hefur keypt brasilíska táninginn Douglas Luiz frá Vasco Da Gama.
Þessi 19 ára gamli strákur skrifaði undir fimm ára samning við City.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Manchester City kaupir í sumar á eftir Ederson, Bernardo Silva og Kyle Walker.

Hann er búinn að leika 10 leiki fyrir Vasco Da Gaman á tímabilinu og í þessum tíu leikjum hefur honum tekist að skora eitt mark.
„Við erum ánægðir með að fá Douglas. Hann er spennandi leikmaður með bjarta framtíð,\" Txiki Begiristain, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester City.
Það er spurning hvort að strákurinn fari beint í aðalliðið, hvort að hann verði lánaður eða spili með varaliðinu.