Fotbolti.net
15.07.17 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Man Utd lánar Johnstone í tíunda sinn (Staðfest)

Johnstone er farinn aftur til Aston Villa.

Johnstone er farinn aftur til Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur lánað markvörðinn Sam Johnstone til Aston Villa fyrir komandi tímabil.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Johnstone fer á láni frá United, alls ekki! Þetta er í tíunda skipti sem hann fer á láni.
Hinn 24 ára gamli Johnstone er að snúa aftur til Aston Villa eftir að hafa leikið með félaginu á seinni hluta síðustu leiktíðar.

Áður hefur Johnstone verið lánaður til Oldham, Scunthorpe, Walsall, Yeovil, Doncaster (tvisvar) og Preston (tvisvar).

Hann er annar leikmaðurinn sem Aston Villa fær til sín í sumar, en áður hafði félagið samið við reynsluboltann John Terry.

Birkir Bjarnason leikur með Aston Villa, en hann kom þangað í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.