15.08.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Michael Hector lánaður til Frankfurt (Staðfest)

Michael Hector hér í leik með Reading

Mynd: Getty Images

Michael Hector hér í leik með Reading

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Michael Hector hefur verið lánaður frá Chelsea til Eintracht Frankfurt í Þýskalandi út þetta leiktímabil.
Hinn 24 ára gamli Hector er jamaískur landsliðsmaður, en hann spilaði með Reading í Championship-deildinni á síðasta tímabili. Þaðan keypti Chelsea hann síðasta sumar fyrir 4 milljónir punda og var hann lánaður strax aftur.

Antonio Conte hefur gefið honum nokkur tækifæri með Chelsea á þessu undirbúningstímabili, en nú er það ljóst að hann mun fara til Þýskalands til þess að þróa leik sinn áfram.
Hector er uppalinn hjá Reading, en áður en hann komst í byrjunarliðið þar var hann í láni hjá liðum eins og Dundalk, Barnet, Shrewsbury, Aldershot, Cheltenham Town og Aberdeen.
Hann á 93 leiki að baki með Reading, ef teknir eru með þeir leikir sem hann spilaði á síðasta leiktímabili. Hann á enn eftir að leika alvöru leik með aðalliði Chelsea.

Michael Hector has today agreed to join German side Eintracht Frankfurt on a season-long loan... https://t.co/qXGvlwZrxz
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 14, 2016
Heimild: Heimasíða Chelsea