Fotbolti.net
15.08.16 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson

Pachu framlengir við Selfoss (Staðfest)

Pachu er með baneitraðan hægri fót.

Pachu er með baneitraðan hægri fót.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Iván \'Pachu\' Martinez Gutiérrez er búinn að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss um tvö ár og rennur hann út eftir sumarið 2018.

Pachu er lykilmaður í liði Selfoss, sem er um miðja Inkasso-deildina, og er búinn að skora sex mörk á tímabilinu spilandi á miðjunni.
„Ég er mjög ánægður með að vera hluti af Selfossliðinu og er mjög sáttur við tímabilið hingað til. Félagið er gott og mér líður vel hér, svo af hverju ekki að taka tvö ár í viðbót?,“ sagði Pachu í samtali við sunnlenska.is.



Pachu segist vera mjög ánægður með lífið á Selfossi, þar sem hann býr með kærustu sinni.



<i>„Selfyssingar koma fram við okkur eins og við séum innfædd. Það gleður okkur hvað við höfum fengið hlýjar móttökur."</i>

Heimild: Sunnlenska

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.