Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 15. ágúst 2020 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rúmlega 10% leikmanna í Pepsi Max vilja ekki spila í Covid
,,Leikmenn eru stærstu hagsmunaaðilarnir
Mynd: Getty Images
Mynd: KSÍ
Íslensku leikmannasamtökin hrintu af stað könnun meðal leikmanna í Pepsi Max-deildum karla og kvenna varðandi Covid-19 faraldurinn.

345 leikmenn svöruðu könnuninni, rúmlega helmingur þeirra var úr Pepsi Max-deild karla og tæpur helmingur úr kvenna.

Fyrsta spurningin er viðhorf leikmanna til þess að fótboltinn hefjist aftur í miðjum Covid faraldri og eru tæplega 70% leikmanna ánægðir með að boltinn byrji aftur að rúlla. Tæplega 20% eru hlutlausir og rúmlega 10% vilja ekki byrja að spila aftur vegna veirunnar.

Rúm 40% óttast að fara í sóttkví og þá voru tæplega 70% leikmanna sem svöruðu að þeirra félög hafi lækkað laun eða aðrar greiðslur í fyrri bylgju faraldursins síðasta vor.

Flest félög gerðu það í sátt við allan leikmannahópinn, en tæplega 30% leikmanna sögðu sitt félag ekki hafa lækkað laun í sátt við leikmenn.

Sjá niðurstöðu könnunar.

Yfirlýsing leikmannasamtakanna:
Þriðjudaginn 11. ágúst settum við út könnun til allra leikmanna í Pepsi Max deildunum, karla og kvenna. Við vildum kanna viðhorf leikmanna gagnvart því að byrja að spila aftur við þær aðstæður sem þá voru uppi, þ.e. seinni bylgja faraldursins í gangi, 100 manna samkomutakmörk og tveggja metra regla.

Þann 14. ágúst samþykkti stjórn KSÍ nýjar reglur varðandi framkvæmd leikja á þeirra vegum og svo varðandi daglegt líf þeirra sem koma að leikjunum. Því skal haldið til haga að leikmenn voru ekki spurðir álits varðandi þessar reglur, hafa ekki samþykkt þær né fengið nokkurs konar kynningu á þeim reglum sem settar voru.

Að auki spurðum við út í það hvort að félögin hefðu brugðist við með einhverjum hætti í fyrri bylgju faraldursins, þ.e. lækkað laun eða aðrar greiðslur og þá hvort það hefði verið gert í sátt við allan leikmannahópinn.

Niðurstöðurnar í könnuninni, ásamt þeim reglum sem voru samþykktar án nokkurs samráðs við leikmenn, sýna okkur að enn er samtalið við leikmenn alls ekki nægilega gott. Það eru gríðarlega mikil vonbrigði og við vonumst til þess að KSÍ og aðrir hagsmunaaðilar fari að átta sig á því að leikmenn eru stærstu hagsmunaaðilarnir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner