Fotbolti.net
15.09.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Ryan Babel til Deportivo La Coruna (Staðfest)

Ryan Babel til Deportivo La Coruna (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Deportivo La Coruna hefur samið við hollenska kantmanninn Ryan Babel.
Hinn 29 ára gamli Babel spilaði með Liverpool frá 2007 til 2011 og var á þeim tíma í hollenska landsliðinu.

Undanfarin ár hefur Babel verið á flakki en hann lék með Hoffenheim í Þýskalandi, Ajax í Hollandi og Kasimpasa í Tyrklandi eftir dvölina hjá Liverpool.

Á síðasta tímabili var Babel á mála hjá Al Ain í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum.

Samningur hans þar var útrunninn og því gat Babel samið við Deportivo þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.