Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. september 2019 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kasakstan: Sigur hjá Rúnari - Næst er það Man Utd
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliðinu hjá Astana sem mætti Shakhtar Karagandy í úrvalsdeildinni í Kasakstan.

Astana var 1-0 undir í hálfleik, en í seinni hálfleiknum kom liðið til baka og vann að lokum góðan 2-1 sigur. Sigurmark Astana í leiknum var vægast sagt skrautlegt.

Íslendingavaktin vekur athygli á þessu. Markið má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Astana er í þriðja sæti deildarinnar í Kasakstan, fimm stigum frá toppnum. Astana á þó leik til góða og vinni liðið þessa tvo leiki, þá fer það á toppinn.

Næsti leikur er mjög spennandi fyrir Rúnar og liðsfélaga hans. Hann er gegn Manchester United á Old Trafford í Evrópudeildinni. Rúnar er mikill stuðningsmaður Manchester United og þetta verður væntanlega skemmtilegt verkefni fyrir hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner