Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. september 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Gary Lineker gerir nýjan samning við BBC - 23% launalækkun
Mynd: Twitter
Gary Lineker hefur skrifað undir fimm ára samning um að halda áfram hjá BBC.

Lineker hefur stýrt markaþættinum Match of the day í áraraðir á BBC og mun nú halda því áfram til ársins 2025.

Lineker tók á sig 23% launalækkun þegar hann skrifaði undir nýja samninginn.

Auk Match of the day mun Lineker starfa hjá BBC í kringum stórmót landsliða og enska bikarinn.

„Ég elska að vinna hjá BBC og er mjög stoltur af því að halda áfram að vinna með framúrskarandi fótbolta starfsfólkinu þar," sagði Lineker.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner