15.10.16 - 16:05
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson tekur við ÍBV (Staðfest)

Magnús Steindórsson og Haraldur Pálsson úr knattspyrnuráði skrifuðu undir samning við Kristján Guðmundsson í Reykjavík í dag.

Mynd: ÍBV

Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV og hefur gert þriggja ára samning við félagið. Hann mun verða búsettur í Vestmannaeyjum og kemur einnig að mótun yngri flokka félagsins.
ÍBV tilkynnti þetta í fréttatilkynningu rétt í þessu en félagið hefur verið í þjálfaraleit undandafarnar vikur. Bjarni Jóhannsson stýrði liðinu í sumar en hætti í ágúst. Alfreð Elías Jóhannsson og Ian Jeffs stýrðu liðinu út tímabilið en völdu báðir að þjálfa kvennalið frekar en að halda áfram. Alfreð Elías hjá Selfossi og Ian Jeffs hjá ÍBV.
Kristján stýrði Leikni út tímabilið í Inkasso deildinni en sagði svo skilið við félagið eftir lokaumferðina.

Kristján er reyndur þjálfari sem hefur bæði þjálfað meistaraflokka á Íslandi og í Færeyjum. Hann stýrði HB Þórshöfn til meistaratitils í Færeyjum árið 2010 og Keflavík til bikarmeistaratitils árið 2006. Litlu munaði að Keflavík yrði Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2008.
Kristján hefur meðal annars sinnt þjálfun hjá Þór 2001-2002, Keflavík frá 2005-2009, Val 2011-2012 og Keflavík 2013-2015. Önnur lið sem hann hefur þjálfað eru ÍR og HB Þórshöfn en síðast var hann þjálfari Leiknis R.
„Knattspyrnuráð ÍBV fagnar því að fá jafn reyndan þjálfara og Kristján til starfa og væntir mikils af honum á komandi árum. Hann verður búsettur í Vestmannaeyjum og mun koma að mótun og stefnu yngri flokka félagsins,\" segir í tilkynningu félagsins.