15.10.16 - 15:43
Hafliði Breiðfjörð
Úlfur Blandon tekur við Val (Staðfest)

Úlfur Blandon er nýr þjálfari Vals.

Mynd: Valur

Úlfur Blandon er nýr þjálfari Vals.

Mynd: Valur

Valur tilkynnti rétt í þessu að Úlfur Blandon hafi verið ráðinn þjálfari kvennaliðs félagsins en hann telur við starfinu af Ólafi Tryggva Brynjólfssyni sem stýrði liðinu í eitt ár.
Úlfur stýrði Gróttu í sumar og undir hans stjórn endaði liðið í 2. sæti 2. deildar karla í sumar og komst því í næst efstu deild. Grótta tilkynnti svo óvænt í gær að hann væri hætturn með liðinu og nú er komið í ljós að hann tekur við Val.
Úlfur sem er 37 ára gamall gerði tveggja ára samning við Hlíðarendafélagið en hann er með UEFA A þjálfaragráðu að því er segir í tilkynningu Vals.
Úlfur Blandon þjálfaði um árabil yngri flokka hjá Fylki og Stjörnunni þar sem hann var m.a. afreksþjálfari.
Úlfur var aðstoðar þjálfari hjá Bjarna Guðjónssonar með karla lið Fram áður en hann fór til Gróttu.
Hér að neðan er viðtal við Úlf af vef Vals.