Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, segir að Jose Mourinho eigi sérstakan stað í hjarta sínu.
McTominay lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Mourinho árið 2017 og hefur síðan þá fest sig í sessi í aðalliði United.
McTominay lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Mourinho árið 2017 og hefur síðan þá fest sig í sessi í aðalliði United.
„Jose skipar sérstakan sess hjá mér. Hann er ennþá í sambandi við mig og heyrir í mér eftir suma leiki," sagði McTominay.
„Hann á alltaf sérstakan stað í hjarta mínu og hjarta fjölskyldunnar því hann var sá sem treysti mér og hafði trú á mér."
„Ég á honum mikið að þakka því ef það væri ekki fyrir hann þá væri ég mögulega ekki í þessu sæti sem ég er í núna."
Athugasemdir