Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. október 2021 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alisson hvíldur í nótt - Spilar hann með Liverpool?
Mynd: Getty Images
Brasilíski markvörðurinn Alisson sat á varamannabekk landsliðsins í nótt þegar liðið vann 4-1 sigur á Úrúgvæ. Ederson varði mark Brasilíu en hann er markvörður Manchester City og Alisson er markvörður Liverpool.

Bæði City og Liverpool eiga leik í ensku úrvalsdeildinni á morgun og verður fróðlegt að sjá hvort þeir spili leikina eða verði hvíldir.

Fabinho, Thiago Silva, Raphinha, Gabriel Jesus, Emerson Royal og Fred byrjuðu einnig inn á hjá brasilíska liðinu í nótt og Douglas Luiz kom inn á. Edinson Cavani spilaði allan leikinn í liði Úrúgvæ.

Emi Martinez, Christian Romero og Giovani Lo Celso spiluðu allir með Argentínu í 1-0 sigri gegn Perú og Miguel Almiron lék með Paragvæ í 4-0 tapi gegn Bolivíu. Davinson Sanchez var á bekknum þegar Kólumbía gerði markalaust jafntefli gegn Ekvador en Yerri Mina var í hjarta varnarinnar.

Sjá einnig:
Hvaða leikmenn gætu misst af leikjum helgarinnar í enska?
Athugasemdir
banner
banner