Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. október 2021 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Raphinha skoraði tvö mörk í sigri Brasilíu
Mynd: EPA
Brasilía vann öruggan 4-1 sigur á Úrugvæ í undankeppni HM í nótt.

Neymar kom Brasilíu yfir strax á 10. mínútu, tæpum tíu mínútum síðar tvöfaldaði Raphinha leikmaður Leeds forystuna, þannig var staðan í hálfleik.

Raphinha bætti öðru marki sínu og þriðja marki Brasilíu við áður en Luis Suarez minnkaði muninn fyrir Urugvæ. Gabriel Barbosa tryggði síðan öruggan 4-1 sigur Brasilíu með marki undir lok leiksins.

Síðara mark Raphinha má sjá með því að smella hér. Glæsileg skyndisókn.

Argentína vann 1-0 sigur gegn Perú. Lautaro Marinez með markið.
Athugasemdir
banner
banner
banner