Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 15. október 2021 20:37
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Hoffenheim lék sér að Köln
Ihlas Bebou skoraði tvö fyrir Hoffenheim
Ihlas Bebou skoraði tvö fyrir Hoffenheim
Mynd: EPA
Hoffenheim 5 - 0 Koln
1-0 Ihlas Bebou ('31 )
2-0 Ihlas Bebou ('49 )
3-0 Christoph Baumgartner ('51 )
4-0 Dennis Geiger ('74 )
5-0 Stefan Posch ('87 )

Hoffenheim var ekki í teljandi vandræðum með Köln er liðin mættust í þýsku deildinni í kvöld en leiknum lauk með 5-0 sigri heimamanna.

Ihlas Bebou gerði fyrstu tvö mörk Hoffenheim. Fyrsta markið kom á 31. mínútu áður en hann gerði afar snyrtilegt mark í upphafi síðari hálfleiks.

Eftir góðan samleik barst boltinn til hans í teignum og tók skemmtilega hælspyrnu í netið. Christoph Baumgartner bætti við þriðja markinu tveimur mínútum síðar áður en Dennis Geiger gerði fjórða markið um það bil stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Stefan Posch bætti markatölu liðsins enn meira með fimmta markinu á 87. mínútu. Lokatölur 5-0 og Hoffenheim nú með 11 stig í 8. sæti deildarinnar á meðan Köln er sæti ofar með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner