15.11.12 - 15:21
Fótbolti.net
Björgvin Karl tekur við KR (Staðfest)

Björgvin Karl þjálfar KR

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Björgvin Karl þjálfar KR

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Björgvin Karl Gunnarsson er tekinn við kvennaliði KR á nýjan leik. Þetta var loks staðfest á heimasíðu KR í gær en Björgvin Karl hefur stýrt æfingum hjá KR undanfarnar vikur.
Lið KR féll úr Pepsi-deildinni í sumar og leikur því í 1.deild á næsta ári. Björgvin Karl tekur við liðinu af Jóni Þór Brandssyni sem lét af störfum í haust.
Björgvin Karl var áður við stjórnartaumana hjá KR sumarið 2011 og þekkir því vel til leikmanna, aðstöðu og starfsemi félagsins. Áður þjálfaði hann meistaraflokks kvenna hjá Hetti á Egilsstöðum.
Björgvin Karl var áður við stjórnartaumana hjá KR sumarið 2011 og þekkir því vel til leikmanna, aðstöðu og starfsemi félagsins. Áður þjálfaði hann meistaraflokks kvenna hjá Hetti á Egilsstöðum.
Heimild: Heimasíða KR
