Fotbolti.net
15.11.16 - 15:12
Jóhann Ingi Hafþórsson

Gautaborg kaupir Elías Má (Staðfest)

Elías Már verður áfram í Gautaborg.

Elías Már verður áfram í Gautaborg.

Canon

Mynd: Getty Images

Sænska félagið Gautaborg hefur gengið frá kaupum á landsliðsframherjanum Elíasi Má Ómarssyni frá norska félaginu Valerenga en þetta var staðfest á heimasíðu Gautaborgar í dag.
Elías Már byrjaði tímaiblið hjá Valerenga en hann fékk ekki að spila eins mikið og hann vildi og fór hann því á lán í Gautaborg á miðju tímabili.

Hann sló í gegn í sænsku deildinni og skoraði hann sex mörk í 13 leikjum hjá Gautaborg sem vildu ólmir halda honum.

Elías á fimm landsleiki fyrir A-landslið Íslendinga en hann hefur hingað til aðeins leikið vináttuleiki. Hann var svo valinn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Króatíu á laugardaginn var og Möltu sem fer fram kl 18:00 í kvöld.

Framherjinn skrifar undir þriggja og hálfs árs samning sem gildir til 2020. Elías er uppalinn Keflvíkingur þar sem hann hóf ferilinn. Hjá Keflavík skoraði hann átta mörk í 41 leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.