15.11.16 - 18:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gerrard fer frá La Galaxy (Staðfest)

Gerrard spilar ekki aftur í þessari treyju.

Mynd: Getty Images

Los Angeles Galaxy hefur staðfest að Steven Gerrard mun ekki vera áfram hjá félaginu.
Hinn 36 ára Gerrard er búinn að vera hjá Galaxy síðustu 18 mánuði eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá uppeldisfélagi sínu í Liverpool.
Galaxy vildi halda Gerrard í eitt tímabil í viðbót en hann hefur ákveðið að yfirgefa Bandaríkin. Gerrard skoraði fimm mörk og lagði upp 14 í viðbót í 34 leikjum með félaginu.
„Það eru búin að vera forréttindi að spila fyrir La Galaxy og stuðningsmenn þeirra. Því miður náðum við ekki að vinna titilinn en þetta er búið að vera góður tími. Ég hef elskað hverja mínútu í Bandaríkjunum og LA Galaxy,\" sagði Gerrard.