Fotbolti.net
15.11.16 - 21:19
Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Hauksson í Þrótt að nýju (Staðfest)

Hlynur Hauksson fer í Þróttarbúninginn að nýju.

Hlynur Hauksson fer í Þróttarbúninginn að nýju.

Canon

Mynd: Björn Ingvarsson

Þróttur tilkynnti í kvöld að varnarmaðurinn Hlynur Hauksson sé genginn í raðir félagsins að nýju en hann tók sér hlé frá fótbolta undanfarið ár. Hlynur gerði tveggja ára samning við Þróttarana en þar spilaði hann sem vinstri bakvörður á þeim tíma sem hann lék þar, alls 83 leiki. Hann hélt í nám í Barcelona síðasta vetur og tók sér svo frí frá fótboltanum í sumar.

Hlynur er annar varnarmaðurinn sem Þróttur fær til liðs við sig undanfarna viku því Grétar Sigfinnur Sigurðarson kom frá Stjörnunni á föstudaginn.
„Þegar Gregg hringdi til að fá mig á fund, þá var ég alveg viss um að hann væri að hafa samband til þess að leysa ákveðin vandmál framar á vellinum… Sumarið 2015 skoraði ég nefnilega eitt mark og skaut nokkrum sinnum í stöng og slá í einum leik!,\" sagði Hlynur í viðtali á vef Þróttar.

„En að öllu gríni slepptu, þá er ég mjög ánægður og spenntur fyrir áætlunum Greggs. Og líst vel á það hlutverk sem hann ætlar mér. Eftir að hafa fylgst dapur í bragði með gengi Þróttar síðastliðið sumar frá suðrænum slóðum, þá vildi ég ólmur gera eitthvað í málunum og tók því takkana fram á nýjan leik.\"

„Þróttur á að vera í hópi þeirra bestu og ekkert helvítis kjaftæði. Það býr mikið í nýja genginu, sem er að safnast núna saman í Laugardalnum og það er mikil tilhlökkun í mér að taka slaginn,“
bætti hann við en á vef félagsins er einnig rætt við Gregg Ryder þjálfara og Ótthar Edvardsson framkvæmdastjóra um samninginn á þeim vef.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.