Fotbolti.net
15.11.16 - 09:26
Magnús Már Einarsson

Kristinn Freyr til GIF Sundsvall (Staðfest)

Kristinn Freyr var bestur í Pepsi-deildinni í sumar að mati Fótbolta.net.

Kristinn Freyr var bestur í Pepsi-deildinni í sumar að mati Fótbolta.net.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kristinn Freyr Sigurðsson hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá sænska félaginu GIF Sundsvall.

Hinn 24 ára gamli Kristinn Freyr er samningslaus og hann gat því farið frítt í annað félag frá Val. Kristinn hefur leikið með Val frá árinu 2012 en hann kom til félagsins frá Fjölni.

Auk Sundsvall var Kristinn orðaður við Östersund í Svíþjóð sem og Íslandsmeistara FH. Kristinn fór hins vegar og skoðaði aðstæður hjá GIF Sunsdvall fyrr í mánuðinum og nú hefur hann samið við félagið.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að spila með GIF Sundsvall. Ég kann vel við staðinn, félagið, þjálfarana og leikmennina,\" sagði Kristinn við heimasíðu Sundsvall.

„Ég tel að félagið vilji spila fótbolta á réttan hátt og leikstílinn passar við leikstíl mín. Ég tel líka að þetta sé rétt skref á ferli mínum og ég hlakka til að hefjast handa hér.\"

Kristinn Freyr skoraði þrettán mörk í Pepsi-deildinni í sumar og var valinn besti leikmaður deildarinnar. Þá hjálpaði hann Valsmönnum að landa bikarmeistaratitlinum annað árið í röð.

GIF Sundsvall endaði í 13. sæti í sænsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili. Kristinn Steindórsson er á mála hjá félaginu en Rúnar Már Sigurjónsson fór þaðan til Grasshoppers í sumar.

„Við erum mjög glaðir og stoltir að hafa gengið frá samningi við Kristin Frey Sigurðsson,\" sagði Urban Hagblom, yfirmaður íþróttamála hjá Sundsvall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.