Fotbolti.net
15.11.16 - 21:24
Hafliði Breiðfjörð

Nenad Zivanovic tekur við Hetti (Staðfest)

Nenad Zivanovic þjálfar Hött.

Nenad Zivanovic þjálfar Hött.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nenan Zivanovic hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Hattar frá Egilsstöðum en þetta staðfesti félagið í kvöld.
Austurfrett.is greindi frá þessu en Nenad tekur við af Gunnlaugi Guðjónssyni sem hætti með liðið eftir sumarið.

Hann hafði þjálfað liðið frá miðju sumri 2014 en undir hans stjórn endaði liðið í 7. sæti 2. deildar í sumar.

Nenad Zivanovic þekkja margir síðan hann spilaði í efstu deild hér á landi með Breiðabliki. Hann var þar árin 2006-2008 en spilaði síðar með Þór og Fjarðabyggð til ársins 2013.

Hann er 40 ára gamall í dag og hefur verið að þjálfar í serbnesku annarri deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.