15.11.16 - 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Þrír efnilegir leikmenn til Fylkis (Staðfest)

Nýjustu leikmenn Fylkis.

Mynd: Fylkir

Nýjustu leikmenn Fylkis.

Mynd: Fylkir

Kvennalið Fylkis hefur samið við þrjá unga leikmenn ásamt því að Elma Lára Auðunsdóttir verður áfram í herbúðum félagsins.
Kristín Þóra Birgisdóttir kemur til Fylkis frá Aftureldingu þar sem hún á 44 leiki að baki, þrátt fyir að vera aðeins 18 ára. Hún hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.
Nafna hennar, Kristín Alfa Arnórsdóttir kemur svo frá Augnablik en hún er einnig fædd 1998. Hún á að baka 30 leiki í meistaraflokki. Auk þess hefur hún spilað átta leiki með yngri landsliðum.
Sunna Baldvinsdóttir kemur svo frá Breiðabliki en hún spilaði einnig með Augnablik í sumar. Sunna á 23 leiki að baki með Augnabliki.
„Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir okkur. Þessir leikmenn eru ansi flottir og passa vel inn í verkefnið hjá okkur. Ég hlakka til að vinna með þessum leikmönnum. Eins er frábært að Elma verði áfram hjá okkur, mjög spennandi og öflugur leikmaður,\" sagði Jón Aðalsteinn Kristjánsson þjálfari liðsins um liðsstyrkinn.