„Þetta er fyrst og fremst heiður og geggjuð tilfinning að ná þessu markmiði," sagði Arnór Sigurðsson við Fótbolta.net eftir að hann spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Belgum í kvld.
Arnór fékk að vita í gær að hann myndi byrja leikinn í dag á
„Ég var að hugsa um að njóta augnabliksins. Það var meiri spenna en stress. Þetta hefur verið draumur síðan maður byrjaði í fótbolta og það er ekki leiðinlegt að ná því í dag, 19 ára á móti Belgum."

Fyrrum þjálfarar ÍA bentu á það á Twitter í kvöld að Arnór var ekki valinn í U16 ára landsliðið sem fór á Ólympíuleika æskunnar í Kína. Hann tók á þeim vonbrigðum með því að gefa ennþá meira í.
„Ég var alveg brjálaður þá. Ég hélt að ég væri bestur í heimi en var þarna hent niður á jörðina. Þá þarf maður að gera eitthvað meira og ég gerði það."
Arnór skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni í síðustu viku og í dag var hans fyrsti landsleikur. „Þetta hefur verið geggjuð vika. Toppurinn var í dag, að spila fyrsta landsleikinn," sagði Arnór.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir